Heimir Þór Ásgeirsson og Ragnar Smári Guðmundsson hafa gengið til liðs við Skallagrím.
Heimir og Ragnar Smári hafa verið í lykilhutverki hjá Grundarfirði í 3. deildinni undanfarin ár.
Grundarfjörður mun ekki senda lið til keppni í 3. deildina í sumar og því hafa Heimir og Ragnar gengið til liðs við Skallagrím.

Báðir leikmennirnir eiga einnig leiki að baki með Víkingi Ólafsvík í 1. deild.
Heimir og Ragnar verða væntanlega í eldlínunni með Skallagrími þegar liðið leikur við Augnablik í kvöld.
Athugasemdir