Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   mið 01. apríl 2015 11:00
Magnús Már Einarsson
Hummels ekki búinn að lofa að koma til Man Utd
Mynd: Getty Images
Mats Hummels, varnarmaður Borussia Dortmund, hefur blásið á sögusagnir þess efnis að hann hafi lofað Louis van Gaal að ganga í raðir Manchester United í sumar.

Hummels hefur lengi verið orðaður við Manchester United en samningur hans við Dortmund rennur út árið 2017.

Hummels segir þó ekkert til í því að hann hafi lofað Van Gaal að koma til Manchester United í sumar.

,,Til að það sé á hreinu þá er þetta meinta "loforð" algjör tilbúningur....og þá er ég að orða þetta á góðan hátt," sagði Hummels á Twitter í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner