Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   mið 01. apríl 2015 15:00
Magnús Már Einarsson
Klifraði upp stöngina til að verjast
Tilþrif sem ættu frekar heima í klifurhúsinu en á fótboltavelli.
Tilþrif sem ættu frekar heima í klifurhúsinu en á fótboltavelli.
Mynd: Twitter
Daniel Nadales, fyrirliði CD Cuarte, beitti mjög óvenjulegum aðferðum við að verjast hornspyrnu í leik gegn CD Teruel í spænsku fjórðu deildinni á dögunum.

Nadales varðist á marklínunni en hann ákvað að klifra upp á stöngina til að ná hærra upp eins og sjá má á myndinni hér til hliðar.

,,Þetta gerðist óvænt. Ég endurtók þetta ekki í leiknum," sagði Daniel.

,,Eftir leikinn las ég reglurnar og ég veit núna að það er hægt að refsa mér fyrir að gera þetta."

,,Liðsfélagar mínir tóku þessu vel en þeir segja samt að ég sé brjálaður að reyna þetta," sagði Daniel.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner