Harry Redknapp er yfir sig hrifinn af sínum gömlu félögum í Bournemouth og segir liðið vera það mest spennandi á Englandi.
Redknapp stýrði Bournemouth í níu ár eftir að hafa spilað yfir 100 leiki fyrir liðið og er hann í skýjunum með að lærisveinar Eddie Howe séu á toppi Championship deildarinnar þegar einungis sjö leikir eru eftir af tímabilinu.

,,Ég er ekki í nokkrum vafa um að þeir eru besta liðið í deildinni. Á síðasta ári spiluðum við tvisvar við þá þegar ég stýrði QPR. Þeir voru frábært lið og ég var sannfærður um að þeir kæmust allavega í umspil á þessu tímabili. Eddie Howe hefur staðið sig frábærlega," sagði Redknapp.
,,Ég hef séð marga leiki og þeir eru besta liðið í deildinni. Þeir spila fótbolta sem allir knattspyrnustjórar á Englandi myndu elska að sjá sitt lið spila."
,,Ég elska að horfa á þá spila. Að mínu mati eru þeir mest spennandi liðið á Englandi. Ég er ekki að segja að þeir muni vinna Chelsea eða neitt þannig, en hvað varðar fótbolta er ekkert lið í landinu að spila skemmtilegari bolta en Bournemouth í augnablikinu."
Athugasemdir