Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
   mið 01. apríl 2015 14:40
Magnús Már Einarsson
Sara Björk: Gríman er stór og klunnaleg
Sara Björk Gunnarsdóttir.
Sara Björk Gunnarsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sara Björk Gunnarsdóttir og liðsfélagar hennar í Rosengård duttu út úr Meistaradeildinni í síðustu viku á útivallarmörkum eftir 3-3 jafntefli gegn Wolfsbug. Sara er mætt til Íslands til að spila með íslenska landsliðinu gegn Hollandi í Kórnum á laugardag.

,,Ég er búinn að fá nokkra daga til að jafna mig. Núna er ég komin í nýtt verkefni og það er einbeiting á leikinn á móti Hollandi," sagði Sara Björk við Fótbolta.net í dag.

,,Það er flott að fá að spila þennan leik. Þetta er mjög sterkt lið og góður æfingaleikur fyrir okkur."

Sara nefbrotnaði í fyrri leiknum gegn Wolfsbug og var með grímu í síðari leiknum. Verður hún með grímu gegn Hollendingum á laugardaginn?

,,Ég held ekki. Hún er mjög óþægileg. Hún er stór og klunnaleg og ég sé ekki eins vel með hana. Ég vona að ég þurfi ekki að nota hana," sagði Sara.

Leikur Íslands og Hollands fer fram í Kórnum klukkan 14:00 á laugardag. Frítt inn.
Athugasemdir
banner
banner