Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 01. apríl 2015 16:05
Magnús Már Einarsson
Sterling: Þetta snýst ekki um peninga
Raheem Sterling.
Raheem Sterling.
Mynd: Getty Images
Raheem Sterling segist ekki hafa hafnað nýjum samningi við Liverpool af peningalegum ástæðum.

Hinn tvítugi Sterling hafnaði samning upp á 100 þúsund pund í vikulaun en núverandi samningur hans hljóðar upp á 35 þúsund pund í vikulaun.

Sterling á rúm tvö ár eftir af samningi sínum við Liverpool en hann hefur slegið öllum viðræðum um nýjan samning á frest fram á sumar.

,,Þetta snýst alls ekki um pening. Þetta hefur aldreið snúist um pening. Ég hef bara talað um að ég vilji vinna titla á ferli mínum. Það er það eina sem ég hef talað um," sagði Sterling í viðtali við BBC.

,,Ég vil ekki tala um hversu marga bíla ég get keypt eða hversu mörg hús ég á. Ég vil bara vera eins góður í fótbolta og ég get."
Athugasemdir
banner
banner
banner