Andros Townsend vonast til að hafa svarað gagnrýnisröddum með marki sínu í 1-1 jafnteflinu gegn Ítalíu í gær.
Towsend skoraði jöfnunarmarkið með skoti fyrir utan teig en hann er ekki ánægður með þá sem hafa gagnrýnt að hann sé í enska landsliðinu.
Towsend skoraði jöfnunarmarkið með skoti fyrir utan teig en hann er ekki ánægður með þá sem hafa gagnrýnt að hann sé í enska landsliðinu.
,,Ég hef viljað komast inn á völlinn til að svara gagnrýnisröddum. Vonandi átta þeir sig á því hvaða gæði ég kem með í liðið," sagði Townsend.
Paul Merson, fyrrum leikmaður Arsenal, gagnrýndi Townsend í vikunni og sagði að hann ætti ekki heima í enska landsliðinu. Kantmaðurinn svaraði fyrir sig á Twitter í gærkvöldi.
,,Ekki slæmt fyrir leikmann sem ætti að vera 'hvergi nálægt hópnum' ha, @PaulMerse," sagði Townsend á Twitter í gær.
Athugasemdir