Bjarni Jóhannsson og ÍBV unnu 4-0 sigur gegn ÍA í fyrstu umferð Pepsi-deildarinnar í sumar.
Lestu um leikinn: ÍBV 4 - 0 ÍA
„Við náum inn marki á áttundu mínútu og síðan var ferskleikinn svolítið okkar megin og við náum bæði frábærum skyndisóknum og að róa leikinn á köflum," sagði Bjarni eftir leik.
„Þetta var vel gert hjá okkur, það er mjög erfitt að spila á móti Skagamönnum, þeir spila á löngum boltum en þar unnum við þá í dag sem lagði grunninn að sigrinum,"
Bjarni og hans menn fara, í bili að minnsta kosti, upp í fyrsta sætið með sigrinum en hann gaf lítið fyrir það.
„Við skulum allavegana bíða þar til annað kvöld og vera rólegir það hefur enginn unnið mótið í maí,"
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum að ofan.
Athugasemdir