Southampton fær Man City í heimsókn í síðasta leik dagsins í enska boltanum.
Bæði lið eru í hörkubaráttu um Evrópusæti en Man City stefnir á Meistaradeildina á meðan Southampton vonast til að komast í Evrópudeildina.
Man City leikur einn mikilvægasta leik í sögu félagsins næstkomandi miðvikudag þegar liðið heimsækir Real Madrid í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.
Manuel Pellegrini er væntanlega með hugann við þann leik en Sergio Aguero byrjar á bekknum í dag og Kevin De Bruyne og Vincent Kompany eru hvíldir.

Byrjunarlið Southampton:Forster, Fonte, Dijk, Martina, Bertrand, Clasie, Davis, Wanyama, Tadic, Mane, Long.
Byrjunarlið Man CityHart, Zabaleta, Otamendi, Mangala, Kolarov, Delph, Fernandinho, Nasri, Sterling, Iheanacho, Bony.
Athugasemdir