Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 01. maí 2016 20:41
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalía: Lazio með góðan sigur á Inter
Klose kom Lazio yfir
Klose kom Lazio yfir
Mynd: Getty Images
Lazio 2 - 0 Inter
1-0 Miroslav Klose ('8 )
2-0 Antonio Candreva ('84 , víti)

Síðasta leik dagsins í Seríu A á Ítalíu var að ljúka, en Inter sótti þá Lazio heim til Rómar.

Lazio byrjaði leikinn miklum krafti og það var markamaskínan Miroslav Klose sem náði forystunni eftir átta mínútna leik.

Staðan var 1-0 í hálfleik, en það dró næst til tíðinda á 83. mínútu. Þá var Jeison Murillo, varnarmanni Inter, vikið af velli með sitt annað gula spjald.

Lazio fékk víti og úr vítaspyrnunni skoraði Antonio Candreva. Það reyndist lokamark leiksins og Lazio því sigurvegari í þessum leik.

Eftir leikinn er Lazio með 51 stig í áttunda sæti deildarinnar á meðan Inter er með 64 stig í fjórða sæti.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner