Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, var ekki tilbúinn að viðurkenna að hann hafi stillt upp of slöku liði í dag þegar Liverpool tapaði 3-1 fyrir Swansea.
Klopp stillti upp yngsta byrjunarliði Liverpool í sögu úrvalsdeildarinnar en hann telur sig hafa stillt upp nógu sterku liði til að vinna leikinn.
„Við stilltum upp mikið breyttu byrjunarliði en þetta lið á að geta spilað mun betri fótbolta. Frammistaðan var ekki nógu góð."
„Við áttum skilið að tapa og þeir áttu skilið að vinna. Svona er fótboltinn á vondum dögum. Við töpuðum boltanum of auðveldlega og það voru margir hlutir sem við áttum að gera betur.
„Ef við hefðum spilað eðlilegan leik hefðum við unnið," sagði Þjóðverjinn.
Athugasemdir