Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 01. maí 2016 17:00
Arnar Geir Halldórsson
Morgan: Stórkostleg tilfinning að skora á Old Trafford
Wes Morgan fagnar marki sínu
Wes Morgan fagnar marki sínu
Mynd: Getty Images
Wes Morgan, fyrirliði Leicester, bjargaði stigi í hús fyrir sína menn í dag þegar liðið heimsótti Man Utd á Old Trafford í ensku úrvalsdeildinni.

Leicester þurfti sigur til að tryggja sér Englandsmeistaratitilinn en Morgan segir jafntefli vera ágætis úrslit.

„Þetta var mjög erfiður leikur. Man Utd stjórnaði leiknum og við þurftum að bregðast við því."

„Við fengum stig og stigum skref í rétta átt. Markið mitt var mikilvægt og að skora á Old Trafford er stórkostleg tilfinning."
sagði Morgan.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner