Björn Daníel Sverrisson var í byrjunarliði Viking frá Stavanger þegar liðið fékk Haugasund í heimsókn í norsku úrvalsdeildinni í dag.
Haugasund komst yfir snemma leiks en Viking náði að jafna fyrir leikhlé. Í síðari hálfleik voru heimamenn svo sterkari og skoruðu tvö mörk með skömmu millibilli en það seinna kom eftir stoðsendingu frá Birni Daníel.
Haugasund tókst svo að minnka muninn í 3-2 skömmu fyrir leikslok en þá var hafði Birni verið skipt af velli.
Viking er með þrettán stig eftir átta leiki og situr í áttunda sæti norsku úrvalsdeildarinnar.
Athugasemdir