Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   sun 01. maí 2016 06:30
Elvar Geir Magnússon
Þóroddur Hjaltalín dæmir leik KR og Víkings
Þóroddur Hjaltalín.
Þóroddur Hjaltalín.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Búið er að opinbera hvaða dómarar verða að störfum í mánudagsleikjunum tveimur í Pepsi-deildinni. Báðir aðaldómararnir það kvöldið koma að norðan.

Þóroddur Hjaltalín mun dæma stórleik KR og Víkings R. á KR-vellinum. Gunnar Sverrir Gunnarsson og Andri Vigfússon verða aðstoðardómarar í þeim leik og Ívar Orri Kristjánsson verður fjórði dómari.

Valdimar Pálsson dæmir leik Stjörnunnar og Fylkis. Frosti Viðar Gunnarsson og Gunnar Helgason verða aðstoðardómarar en Sigurður Óli Þórleifsson í hlutverki fjórða dómara.

sunnudagur 1. maí
16:00 Þróttur R.-FH Dómari: Vilhjálmur Alvar
17:00 ÍBV-ÍA Dómari: Pétur Guðmundsson
19:15 Breiðablik-Víkingur Ó. Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
20:00 Valur-Fjölnir Dómari: Guðmundur Ársæll

mánudagur 2. maí
19:15 Stjarnan-Fylkir Dómari: Valdimar Pálsson
19:15 KR-Víkingur R. Dómari: Þóroddur Hjaltalín
Athugasemdir
banner
banner
banner