Fotbolti.net
01.05.17 - 22:34
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Gummi Tóta: Mitt besta mark á ferlinum

Í leik með landsliðinu.

Í leik með landsliðinu.

Canon

Mynd: Getty Images

„Þetta var gott mark. Ég er búinn að fá mörg skilaboð frá vinum sem eru mjög ánægðir með markið,\" sagði Guðmundur Þórarinsson við Fotbollskanalen í Svíþjóð í dag.

Guðmundur skoraði fallegt mark þegar Norrköping gerði 3-3 jafntefli gegn Djurgarden. Þetta var fyrsta mark Guðmundar hjá nýju liði.
Hann kom Norrköping í 3-2, en Djurgarden jafnaði stuttu síðar. Markið var stórglæsilegt, en það má sjá í myndbandinu að neðan.

„Það er sorglegt að markið hafi ekki dugað til sigurs, vegna þess að mér leið eins og þetta væri sigurmark þegar ég skoraði.\"

Guðmundur ræddi einnig við Aftonbladet og þar sagði hann að markið væri hans besta á ferlinum.

„Þetta er besta mark sem ég hef skorað,\" sagði hann, en markið má eins og áður segir sjá hér að neðan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.