Spilaði allan ferilinn með Sindra og dæmir hjá liðinu

Úr leik hjá kvennaliði Sindra.

Mynd: Sigurður Arnar Sigurðsson

Úr leik hjá kvennaliði Sindra.

Mynd: Sigurður Arnar Sigurðsson

Keflvíkingar voru ósáttir við dómgæslu í leik liðsins gegn Sindra í 1. deild kvenna á dögunum því Bríet Bragadóttir dómari leiksins spilaði allan sinn feril sem knattspyrnukona með liði andstæðinganna.
Keflavík fékk Sindra frá Hornafirði í heimsókn á Nettóvöllinn í Keflavík á laugardaginn fyrir rúmri viku síðan og tapaði þá 2-3.
Forráðamenn félagsins voru ósáttir með dómgæsluna í leiknum og töldu Bríeti hafa sleppt augljósu rauðu spjaldi á leikmann Sindra og sögðu greinilegan kunningsskap milli leikmanna andstæðinganna og Bríetar.
Þegar málin voru skoðuð frekar mátti sjá að Bríet spilaði sjálf á árunum 2007-2010 með liði Sindra, allan sinn meistaraflokksferil, alls 35 leiki en hún er í dag skráð í Boltafélag Norðfjarðar.