Arnar Þór Viðarsson hefur verið ráðinn þjálfari varaliðs Lokeren í Belgíu en þetta kemur fram á vef Morgunblaðsins.
Arnar þekkir mjög vel til hjá Lokeren en hann spilaði 235 deildarleiki með liðinu frá árinu 1997-2006.
Arnar þekkir mjög vel til hjá Lokeren en hann spilaði 235 deildarleiki með liðinu frá árinu 1997-2006.
Á síðasta tímabili var Arnar þjálfari Cercle Brugge í nokkra mánuði í belgísku úrvalsdeildinni en honum var sagt upp störfum í mars.
Hinn 37 ára gamli Arnar var áður aðstoðarþjálfari og leikmaður Cercle Brugge en hann lagði skóna á hilluna í fyrra.
Athugasemdir