Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 01. júlí 2015 11:56
Elvar Geir Magnússon
Guardian segir að Falcao hafi skrifað undir hjá Chelsea
Falcao lék með Manchester United síðasta vetur.
Falcao lék með Manchester United síðasta vetur.
Mynd: Getty Images
Radamel Falcao hefur skrifað undir samning við Chelsea samkvæmt heimildum Guardian. Haft er eftir fjölskyldumeðlimum kólumbíska sóknarmannsins að allt sé frágengið.

Guardian er talinn einn allra áreiðanlegasti fjölmiðill Englands.

Falcao mun koma til móts við Englandsmeistarana í æfingaferð í Norður-Ameríku. Talið er að hann komi á eins árs lánssamningi frá Mónakó í Frakklandi.

Chelsea á eftir að tilkynna um samkomulagið formlega en þessi 29 ára leikmaður lék á láni hjá Manchester United síðasta vetur en náði ekki að finna sig.

Falcao og Jose Mourinho, stjóri Chelsea, eru með sama umboðsmann, Jorge Mendes.

Kólumbíumaðurinn hefur átt erfitt síðan hann sleit liðbönd í franska bikarnum fyrir 19 mánuðum.
Athugasemdir
banner
banner