Eftir miklar vangaveltur er ljóst að Ilkay Gundogan verður áfram hjá þýska liðinu Borussia Dortmund.
Þessi 24 ára þýski miðjumaður var meðal annars orðaður við Manchester United.
En í dag krotaði hann nafn sitt á blað og hefur gert nýjan samning við Dortmund sem gildir til 2017.
Gundogan hefur leikið 80 leiki fyrir Dortmund síðan hann kom frá Nürnberg 2011 en Dortmund stóð engan veginn undir væntingum á síðasta tímabili.
Athugasemdir