Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 01. júlí 2015 14:42
Elvar Geir Magnússon
Kolbeinn staðfestur sem leikmaður Nantes bráðlega
Kolbeinn Sigþórsson.
Kolbeinn Sigþórsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er alveg ljóst að íslenski landsliðsmaðurinn Kolbeinn Sigþórsson verður orðinn leikmaður Nantes mjög bráðlega.

Þetta fullyrða hollenskir fjölmiðlar sem segja að málið sé á lokastigi og Nantes muni staðfesta Kolbein von bráðar.

Kolbeinn hefur raðað inn mörkum fyrir íslenska landsliðið en náði ekki þeim hæðum sem vonast hafði verið eftir hjá Ajax á síðasta tímabili þar sem meiðsli settu strik í reikninginn.

Hann skoraði sigurmarkið í landsleiknum mikilvæga gegn Tékklandi á dögunum.

Kolbeinn varð þrívegis hollenskur meistari með Ajax en gengur nú í raðir Nantes sem hafnaði í 14. sæti frönsku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili, átta stigum fyrir ofan fallsæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner