Víkingar eru með skoskan vængmann á reynslu hjá sér þessa dagana. Þetta staðfesti Heimir Gunnlaugsson varaformaður félagsins.
Um er að ræða hinn 28 ára, Jamie McCluskey sem lék síðast með Greenock Morton.
Um er að ræða hinn 28 ára, Jamie McCluskey sem lék síðast með Greenock Morton.
Morton vann sér sæti í næst efstu deild í Skotlandi á síðasta tímabili. Þar lék Jamie 27 leiki af 36, og skoraði í þeim leikjum fimm mörk.
Jamie McCluskey æfir með Víkingum næstu daga að sögn Heimis.
Víkingar eru í leit að styrkingu á sínu liði en liðið er í 8. sæti Pepsi-deildarinnar með 9 stig.
Þeir mæta FC Koper í undankeppni Evrópudeildarinnar annað kvöld í Víkinni.
Athugasemdir