mið 01. júlí 2015 13:30
Magnús Már Einarsson
Sylvain Distin til Bournemouth (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Sylvain Distin hefur gengið til liðs við nýliða Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni.

Distin kemur frítt til Bournemouth eftir að samningur hans hjá Everton rann út.

Hinn 37 ára gamli Distin hefur mikla reynslu úr ensku úrvalsdeildinni en hann hefur einnig leikið með Portsmouth, Newcastle og Manchester City á ferli sínum.

Bournemouth keypti varnarmanninn Tyrone Mings frá Ipswich á átta milljónir punda í síðustu viku.

Í sumar hafa markverðirnir Adam Federici og Artur Boruc einnig komið til félagsins sem og framherjinn Josh King og kantmaðurinn Christian Atsu sem kemur á láni frá Chelsea.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner