Venni Páer, birti í gær pistil á Fótbolta.net þar sem hann var með skilaboð til Arons Einars Gunnarssonar, landsliðsfyrirliða.
Venni ráðlagði þar Aroni að semja við Frakka um að Ísland fái 1-0 sigur í leiknum í 8-liða úrslitum EM á sunnudagskvöld.
Aron Einar segist hafa haft mjög gaman að því að sjá skilaboðin frá Venna.
Venni ráðlagði þar Aroni að semja við Frakka um að Ísland fái 1-0 sigur í leiknum í 8-liða úrslitum EM á sunnudagskvöld.
Aron Einar segist hafa haft mjög gaman að því að sjá skilaboðin frá Venna.
„Ég hafði virkilega gaman að þessu og hló mikið. Þetta er karakter hjá honum, ég hef hitt hann úti á götu og þá er hann allt öðruvísi," sagði Aron.
„Ég dýrka Venna Páer, allt frá því að hann spilaði handbolta með Þór. Hann var í júdó og svo spilaði hann í miðjunni í 6-0 vörninni hjá Þór í handbolta. Hann snéri menn niður og var grjótharður."
Sjá einnig:
Skilaboð til Arons Einars
Smelltu hér til að horfa á viðtali við Aron í heild
Facebook síða Venna Páer
Athugasemdir