Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 01. júlí 2016 13:14
Þorsteinn Haukur Harðarson
Ben Arfa til PSG (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Franska stórliðið PSG, hefur gengið frá kaupum á franska leikmanninum Hatem Ben Arfa.

Ben Arfa kemur til liðsins frá Nice þar sem hann hefur spilað í eitt ár en hann gerir tveggja ára samning við PSG.

Áður spilaði hann með Newcastle á Englandi árin 2010-2015 en seinasta árið var hann svo á láni hjá Hull City.

Þessi 29 ára gamli leikmaður var ein mesta vonarstjarna Frakklands fyrir nokkrum árum en hann náði ekki að standa undir væntingunum.

Hann sýndi hinsvegar fína takta með Nice síðastliðinn vetur og vonast til að ná ferlinum á flug með félagsskiptunum til PSG.

Hann var í úrtaki franska landsliðsins fyrir EM en komst ekki í lokahópinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner