Birkir Már Sævarsson, hægri bakvörður Íslands, situr fyrir svörum á fréttamannafundi Íslands í dag.
Birkir er snöggur og með mikla hlaupagetu en hann var spurður út í sögu þegar hann eyðilagði hlaupabretti með því að hlaupa of hratt.
Birkir er snöggur og með mikla hlaupagetu en hann var spurður út í sögu þegar hann eyðilagði hlaupabretti með því að hlaupa of hratt.
„Ég man reyndar eftir þessu. Ég brenndi út hlaupabretti í jólafríinu þegar ég var að taka spretti. Ég veit ekki hvort að hlaupabrettið virki í dag en það bilaði í einhvern tíma," sagði Birkir og hló.
Sagan kemur frá Bolungarvík en þar á Birkir ættingja. Birkir kann mjög vel við sig í Bolungarvík.
„Ást mín á Bolungarvík er gríðarleg. Það er fallegur staður og það er gaman að koma þangað í frí og kúpla sig út frá öllu," sagði Birkir.
Athugasemdir