Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 01. júlí 2016 12:27
Þorsteinn Haukur Harðarson
Chelsea losar sig við Pato, Falcao og Amelia
Falcao hefur átt slæma dvöl á Englandi
Falcao hefur átt slæma dvöl á Englandi
Mynd: Getty Images
Enska knattspyrnuliðið Chelsea hefur ákveðið að losa sig við þrjá leikmenn fyrir næsta tímabil

Leikmennirnir sem um ræðir eru Radamel Falcao, Alexandre Pato og markmaðurinn Marco Amelia.

Falcao og Pato voru báðir lánsmenn hjá félaginu og stóð Chelsea til boða að framlengja við leikmennina. Þeir náðu hinsvegar ekki að heilla neinn í vetur og fara því báðir til sinna félaga.

Pato fer því aftur til Corinthians í Brasilíu og Falcao fer til Monaco í Frakklandi.

Marco Amelia er hinsvegar samningslaus og getur leitað sér að nýju liði.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner