Argentínski knattspyrnumaðurinn Fabricio Coloccini hefur samið við San Lorenzo í heimalandinu.
Coloccini hefur spilað með Newcastle við góðan orðstír síðastliðin átta ár en hefur nú ákveðið að halda heim til Argentínu.
Þessi 34 ára gamli varnarmaður lék með Lorenzo árin 2000-2001 og má því segja að hann sé að snúa aftur á fornar slóðir.
Athugasemdir