Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fös 01. júlí 2016 19:16
Þorsteinn Haukur Harðarson
Crystal Palace með mettilboð í Benteke
Mynd: Getty Images
The Mirror greinir frá því í dag að enska úrvalsdeildarfélagið Crystal Palace hafi áhuga á Christian Benteke, leikmanni Liverpool. Palace er tilbúið að borga metfé fyrir leikmanninn.

Heimildir Mirror herma að félagið sé tilbúið til að borga 25 milljónir punda fyrir leikmanninn en sjónir félagsins beindust að Benteke eftir að Marseille hafnaði 31 milljón punda tilboði í Michy Batshuyi.

Crystal Palace hefur félagsskiptagluggann með látum því félagið hefur strax keypt markmanninn Steve Mandanda og Andros Townsend.

Benteke kom til Liverpool fyrir seinasta tímabil en stóð ekki undir væntingum að mati flestra.
Athugasemdir
banner
banner