Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fös 01. júlí 2016 19:56
Þorsteinn Haukur Harðarson
Faðir Pogba segir hann vilja spila í betri deild
Mynd: Getty Images
Paul Pogba, leikmaður Juventus á Ítalíu, vill fara í sterkari deild. Þetta segir faðir leikmannsins við fréttamiðilinn AS.

Pogba fór frá Manchester United til Ítalíu árið 2012 en er nú orðaður við endurkomu á Old Trafford. Þá er Real Madrid einnig sagt hafa áhuga á leikmanninum.

"Hann vill spila í sterkari deild, hann getur valið á milli liða í sterkari deildum," sagði faðir leikmannsins.

Pogba er hluti af franska landsliðinu sem mætir Íslandi á EM á sunnudag.
Athugasemdir
banner