Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 01. júlí 2016 17:08
Þorsteinn Haukur Harðarson
Griezmann vann tvöfalt í Football Manager - Henti samlanda úr liðinu
Griezmann spilar Football Manager
Griezmann spilar Football Manager
Mynd: Getty Images
Á milli þess sem leikmenn mæta á æfingar og spila leiki á EM er mikill tími sem fer í að hanga á hótelinu.

Antoine Griezmann, sóknarmaður franska landsliðsins, hefur greint frá því að hann drepi tímann með því að spila tölvuleikinn Football Manager.

Hann tók við liði Arsenal í leiknum og gerði liðið að enskum meisturum auk þess sem liðið vann Meistaradeild Evrópu með félaginu.

Það sem vakti kannski meiri athygli er að hann sagðist hafa keypt Romelu Lukaku frá Everton til að leiða sóknarlínuna í stað samherja hans hjá franska landsliðinu, Olivier Giroud.

Griezmann og félagar í franska landsliðinu mæta Íslandi í 8-liða úrslitum EM á sunnudag.
Athugasemdir
banner
banner
banner