Það eru hreinlega allir á Íslandsvagninum eftir frábæra frammistöðu okkar manna á Evrópumótinu í Frakklandi.
Liðið okkar er komið í 8 liða úrslit keppninnar og mætir þar heimamönnum í Frakklandi á Stade de France á sunnudaginn.
Það er ekki bara liðið á vellinum sem vekur athygli heldur líka stuðningsmennirnir mögnuðu í stúkunni.
Þýska blaðið Berliner Morgenpost sem var stofnað á 19. öldinni er komið á vagninn og þar á bæ hafa menn sett upp heimasíðu tileinkaða Íslandi.
Á síðunni er hægt að taka Víkingafagnið okkar með því að smella á einn hnapp og þegar er búið að gera það 300 þúsund sinnum þegar þetta er skrifað.
Smelltu hér til að sjá síðuna
Athugasemdir