Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 01. júlí 2016 07:33
Magnús Már Einarsson
Sá sem rak Mandzukic út af dæmir Frakkland - Ísland
Icelandair
Björn rekur Mandzukic af velli.
Björn rekur Mandzukic af velli.
Mynd: Getty Images
Hinn hollenski Björn Kuipers dæmir leik Íslands og Frakklands á sunnudaginn.

Björn rak Mario Mandzukic af velli þegar Ísland mætti Króatíu í umspili fyrir HM í Zagreb árið 2013.

Hinn 43 ára gamli Björn hefur verið FIFA dómari frá því árið 2006 en hann dæmdi úrslitaleik Meistaradeildarinnar árið 2014 þegar Real Madrid sigraði Atletico Madrid 4-1 eftir framlengingu.

Aðstoðardómararnir koma einnig frá Hollandi en það eru Sander van Roekel og Erwin Zeinstra.

Sprotadómarar eru Pol van Boekel og Richard Liesveld en fjórði dómari er Milorad Mažić frá Serbíu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner