Brasilíski knattspyrnumaðurinn Marquinhos var nýverið valinn í 18 manna hóp Brasilíu fyrir Ólympíuleikanna sem fram fara í Ríó í Brasilíu í sumar. Nú er hinsvegar útlit fyrir að hann spili ekki á leikunum.
Marquinhos er í eigu franska liðsins PSG og forráðamenn PSG eru ekki tilbúnir til þess að hleypa Marquinhos í verkefnið með landsliðinu.
Keppt verður í knattspyrnu á Ólympíuleikunum daganna 3. -20. ágúst en fyrsti leikur PSG í frönsku deildinni er 13. ágúst. MArquinhos myndi því missa af nokkrum leikjum.
Franska liðinu ber ekki skylda til að leyfa leikmanninum að spila á leikunum þar sem þetta er ekki mót á vegum FIFA.
Athugasemdir