Eftir fall úr ensku úrvalsdeildinni í vor er Newcastle farið að undirbúa sig fyrir komandi átök í Championship deildinni á næsta tímabili. Liðið festi kaup á tveimur leikmönnum í dag.
Leikmennirnir sem um ræðir eru framherjinn Dwight Gayle og vængamaðurinn Matt Ritchie.
Gayle kemur til Newcastle frá Crystal Palace á tíu milljónir punda en þessi 25 ára gamli leikmaður hefur skorað 26 mörk í 74 leikjum með Palace síðan hann kom til liðsins árið 2013.
Ritchie er síðan 26 ára og spilaði stórt hlutverk í liði Bournemouth sem hélt sæti sínu í úrvalsdeildinni í fyrra. Hann kostar Newcastle tólf milljónir punda.
Báðir semja þeir við Newcastle til fimm ára.
Athugasemdir