Oliver Sigurjónsson, miðjumaður Breiðabliks var svekktur eftir 3-2 tap á móti FK Jelgava frá Lettlandi í gær.
Daniel Bamberg náði að jafna í 1-1 í fyrri hálfleik en gestirnir skoruðu tvö mörk til viðbótar áður en hálfleiknum lauk en Breiðablik náði að skora eitt mark undir lokin og gerðu þetta að alvöru einvígi fyrir seinni leikinn.

„Þetta var svekkjandi tap, það er vont að fá á sig þrjú mörk í Evrópukeppni en þetta var bara tap með einu marki, okkur dugar að vinna með tveimur mörkum frekar en þreim."
„Það kom mér á óvart hvað við vorum slakir. Við misstum boltann á hættulegum stöðum."
Hann var spurður um möguleika Blika í seinni leiknum.
„Það er möguleiki á sigri og nú kemur í ljós, úr hverju menn eru gerðir. Ef við ætlum að vera lúserar, koma menn eins og aumingjar í næsta leik. Ef við erum eins og sigurvegarar komum við til baka."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir