Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 01. júlí 2016 17:36
Þorsteinn Haukur Harðarson
Zlatan: Himinlifandi að vera kominn til Man. Utd
Zlatan í rauðu treyjunni.
Zlatan í rauðu treyjunni.
Mynd: Heimasíða Manchester United
Eins og flestir vita er Zlatan Ibrahimovic orðinn leikmaður Manchester United á Englandi en þangað kemur hann frá PSG í Frakklandi. Enska liðið kynnti leikmanninn á heimasíðu sinni þar sem Zlatan tjáði sig um nýja félagið.

"Ég er himinlifandi að vera orðinn leikmaður Manchester United og ég hlakka mikið til að spila í ensku úrvalsdeildinni," sagði Zlatan og bætti við.

"Það verður líka gaman að vinna aftur með Mourinho enda er hann frábær þjálfari. Þetta verður spennandi áskorun. Ég hef búið til mikið af frábærum minningum á ferli mínum og það verður gaman að búa til góðar minningar frá Englandi."
Athugasemdir
banner
banner
banner