Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 01. ágúst 2014 06:00
Daníel Freyr Jónsson
Aguero og Kompany gætu misst af upphafi leiktíðar
Manuel Pellegrini gæti verið án sterkra leikmanna í byrjun tímabils.
Manuel Pellegrini gæti verið án sterkra leikmanna í byrjun tímabils.
Mynd: Getty Images
Manuel Pellegrini, stjóri Englandsmeistara Manchester City, hefur gefið í skyn að stórstjörnurnar Sergio Aguero og Vincent Kompany verði ekki klárir fyrir upphaf leiktíðarinnar.

Hvorugur þeirra hefur hafið æfingar með City, en þeir eru enn í fríi eftir að hafa leikið á Heimsmeistaramótinu í sumar.

Rúm vika er þar til City leikur gegn Arsenal í samfélagsskildinu, áður en enska úrvalsdeildin hefst viku síðar.

,,Þeir fimm sem komu á fimmtudaginn, Joe Hart, James Milner, Yaya Toure og Edin Dzeko - ég tel að þeir verði allir klárir fyrir deildina," sagði Pellegrini.

,,Við munum sjá með þá sem mæta á mánudaginn. Ná þeir að verða klárir á 15 dögum? Kannski ekki allir þeirra."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner