Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 01. ágúst 2014 19:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Jose Basanta til Fiorentina (Staðfest)
Jose Maria Basanta.
Jose Maria Basanta.
Mynd: Getty Images
Fiorentina hefur fengið til sín Jose Maria Basanta frá Monterrey í Mexíkó.

Basanta er argentínskur landsliðsmaður og spilaði hann tvo leiki á leið liðsins í úrslitaleik HM.

Hinn þrítugi Basanta hefur spilað yfir 200 leiki fyrir Monterrey en hefur skipt yfir til Flórensar liðsins fyrir óuppgefna fjárhæð.

Fiorentina gaf frá sér yfirlýsingu eftir að félagskiptin voru gerð.

,,Fiorentina getur staðfest að Jose Maria Basanta hefur gengið til liðsins frá Monterrey"

Athugasemdir
banner
banner