Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 01. ágúst 2014 09:00
Fótbolti.net
Úrvalslið 14. umferðar 1. deildar: Þrír Skagamenn
Hjörtur skoraði fyrir ÍA.
Hjörtur skoraði fyrir ÍA.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Andy Pew er í vörninni.
Andy Pew er í vörninni.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Jósef Kristinn Jósefsson.
Jósef Kristinn Jósefsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Skagamenn eiga þrjá leikmenn í úrvalsliði 14. umferðar í 1. deildinni. Skagamenn gerðu góða ferð til Ólafsvíkur þar sem þeir unnu Víking 3-1 á útivelli. Garðar Bergmann Gunnlaugsson skoraði tvívegis og Hjörtur Hjartarson eitt. Ármann Smári Björnsson var síðan öflugur í vörninni.


Luka Jagacic og Andy Pew voru öflugir í liði Selfyssinga í 2-1 útisigri á Þrótti. Scott Ramsay og Jósef Kristinn Jósefsson sköruðu fram úr hjá Grindavík í mikilvægum 3-0 sigri á BÍ/Bolungarvík en hann lyfti liðinu af af fallsvæðinu.

Óttar Bjarni Guðmundsson og Hilmar Árni Halldórsson skoruðu mörk toppliðs Leiknis gegn KV, Beitir Ólafsson var öflugur í marki HK gegn KA og Hilmar Geir Eiðsson átti fína spretti með Haukum í 5-0 sigri á botnliði Tindastóls.

Úrvalslið 14. umferðar 1. deildar:
Beitir Ólafsson - HK

Ármann Smári Björnsson - ÍA
Óttar Bjarni Guðmundsson - Leiknir R.
Andy Pew - Selfoss
Jósef Kristinn Jósefsson - Grindavík

Hilmar Geir Eiðsson - Haukar
Luka Jagacic - Selfoss
Scott Ramsay - Grindavík
Hilmar Árni Halldórsson - Leiknir R.

Garðar Bergmann Gunnlaugsson - ÍA
Hjörtur Júlíus Hjartarson - ÍA

Ert þú á vellinum í 1. deildinni? Þú getur komið með tilnefningar í úrvalsliðið með því að senda á @elvargeir á Twitter.

Sjá einnig:
Úrvalslið 13. umferðar
Úrvalslið 12. umferðar
Úrvalslið 11. umferðar
Úrvalslið 10. umferðar
Úrvalslið 9. umferðar
Úrvalslið 8. umferðar
Úrvalslið 7. umferðar
Úrvalslið 6. umferðar
Úrvalslið 5. umferðar
Úrvalslið 4. umferðar
Úrvalslið 3. umferðar
Úrvalslið 2. umferðar
Úrvalslið 1. umferðar
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner