Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   lau 01. ágúst 2015 16:28
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Allan til Liverpool (Staðfest)
Allan hér ásamt Philippe Coutinho og Roberto Firmino á æfingu hjá Liverpool
Allan hér ásamt Philippe Coutinho og Roberto Firmino á æfingu hjá Liverpool
Mynd: Metro
Liverpool hefur staðfest kaup á efnilega miðjumanninnum, Allan frá Internacional á rúmlega 500 þúsund pund.

Þessi 18 ára gamli Brassi hefur verið að æfa með Liverpool undanfarið og hefur nú skrifað undir hjá félaginu.

"Liverpool hefur tryggt sér Allan fyrir framtíðina en hann hefur verið að æfa með félaginu undanfarið með leyfi frá Internacional," segir í Twitter færslu frá Liverpool.

Allan sem er aðeins 18 ára gamall mun annað hvort spila með unglingaliði Liverpool eða fara á láni frá félaginu.

Allan er áttundi leikmaðurinn sem að Liverpool fær til sín í sumar.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner