Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 01. ágúst 2015 07:30
Stefán Haukur
Baker framlengir við Aston Villa
Nathan Baker og Philippe Senderos.
Nathan Baker og Philippe Senderos.
Mynd: Getty Images
Nathan Baker hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Aston Villa en þetta staðfesti félagið í gærkvöldi.

Baker hefur verið orðaður við Burnley og fleiri lið en hann hefur ákveðið að vera áfram hjá Villa.

„Ég er í skýjunum með þennan samning. Ég hef verið hér síðan ég var átta ára og ég er ánægður með að vera hér áfram. Þetta er heimili mitt;“ sagði Baker í viðtali við vefsíðu félagsins.

„Mér finnst ég hafa bætt mig og ég held ég geti bætt mig enn meira,“

Baker hefur leikið 88 leiki fyrir aðallið Aston Villa.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner