Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   lau 01. ágúst 2015 19:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: Goal 
Iniesta: Forréttindi að spila með Messi
Iniesta fagnar hér marki ásamt Messi og öðrum liðsfélögum sínum
Iniesta fagnar hér marki ásamt Messi og öðrum liðsfélögum sínum
Mynd: Getty Images
Andres Iniesta, fyrirliði Barcelona, segir að það séu forréttindi að hafa spilað með Lionel Messi í jafn langan tíma og hann hefur gert.

Iniesta, sem talinn er einn af betri miðjumönnum allra tíma, hefur spilað með Messi hjá Barcelona síðustu tíu ár.

"Við höfum upplifað alls konar hluti saman og þekkjum hvorn annan mjög vel," sagði Iniesta.

"Sannleikurinn er sá að það eru algjör forréttindi að spila með honum. Ég get ekki sagt mikið meira en það."

"Leo hefur alltaf verið einstakur fyrir mér og vonandi fæ ég að spila með honum mikið lengur. Það er það sem skiptir máli."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner