Heimild: Sky Sports
Norwich hefur fengið markvörðinn, Jake Kean, en hann kemur til félagsins á frjálsri sölu eftir að hafa yfirgefið Blackburn.
Þessi 24 ára gamli markvörður skrifaði undir tveggja ára samning við Norwich, sem eru nýliðar í ensku úrvalsdeildinni.
Þessi 24 ára gamli markvörður skrifaði undir tveggja ára samning við Norwich, sem eru nýliðar í ensku úrvalsdeildinni.
Hjá Norwich kemur hann til með að berjast við Declan Rudd og John Ruddy um sæti í byrjunarliðinu.
Hann er fimmti leikmaðurinn sem að Norwich fær til sín í sumar en áður hafði félagið fengið Graham Dorrans, Youssuf Mulumbu, Robbie Brady og Andre Wisdom.
Athugasemdir