Heimild: ESPN
Loic Remy, leikmaður Chelsea, stefnir á að vera í stærra hlutverki hjá Englandsmeisturunum á komandi tímabili.
Remy gekk til liðs við Chelsea síðasta sumar frá QPR en náði ekki að vinna sér inn sæti í byrjunarliðinu, þar sem að Diego Costa var fyrsti kostur í framherjastöðuna.
Remy gekk til liðs við Chelsea síðasta sumar frá QPR en náði ekki að vinna sér inn sæti í byrjunarliðinu, þar sem að Diego Costa var fyrsti kostur í framherjastöðuna.
"Ég vil leggja allt sem ég get til liðsins og gera meira á þessu tímabili en því síðasta, þar sem ég held að þetta tímabil verði erfiðara," sagði Remy.
"Þannig að allir leikmennirnir verða að vera betri en á síðustu leiktíð og ég vil einnig vera betri, spila meira og skora fleiri mörk."
Hinn 28 ára gamli Remy kom við sögu í 21 leik á síðasta tímabili og skoraði í þeim sjö mörk.
Athugasemdir