lau 01. ágúst 2015 09:00
Stefán Haukur
Wilshere: Getum unnið deildina ef við byrjum vel
Jack Wilshere og Jermaine Defoe.
Jack Wilshere og Jermaine Defoe.
Mynd: Getty Images
Jack Wilshere er viss um að Arsenal geti barist um titilinn ef þeir byrja tímabilið vel.

Arsenal vann 19 af síðust 26 leikjum sínum á síðustu leiktíð en þeir byrjuðu tímabilið hörmulega og unnu aðeins tvo af fyrstu átta leikjum sínum.

Félagið endaði í þriðja sæti deildarinnar, aðeins tólf stigum á eftir sigurvegurunum í Chelsea.

„Við byrjuðum ekkivel á síðasta tímabili en við enduðum frábærlega. Ef við hefðum spilað svoleiðis allt tímabilið hefðum við unnið ensku úrvalsdeildina"

„Ef við byrjum þetta tímabil eins og við enduðum það síðasta þá eigum við góða möguleika á að vinna deildina,"

„Við erum í góðri stöðu"

Athugasemdir
banner
banner
banner