Atletico Madrid hefur tryggt sér ítalska sóknarmanninn Alessio Cerci frá Torino. Spænsku meistararnir tilkynna þetta á heimasíðu sinni.
Cerci er 27 ára og var orðaður við Arsenal en hann mun í dag skrifa undir þriggja ára samning við Atletico eftir að hafa lokið læknisskoðun.
Cerci er 27 ára og var orðaður við Arsenal en hann mun í dag skrifa undir þriggja ára samning við Atletico eftir að hafa lokið læknisskoðun.
Cerci á 13 leiki fyrir ítalska landsliðið en hann hefur skorað 21 mark og lagt upp 19 á síðustu tveimur tímabilum hjá Atletico.
Atletico er spænskur meistari en talsverðar breytingar hafa orðið á leikmannahópi félagsins í sumar. Diego Costa, Thibaut Courtois, Filipe Luis og David Villa hafa yfirgefið félagið.
Inn hafa komið Antoine Griezmann, Mario Mandzukic, Raul Jimenez, Jan Oblak og Guilherme Siqueira.
Athugasemdir