mán 01. september 2014 20:13
Magnús Már Einarsson
Arsenal að kaupa Welbeck á 16 milljónir punda
Welbeck er á leið til Arsenal.
Welbeck er á leið til Arsenal.
Mynd: Getty Images
Manchester United hefur samþykkt 16 milljóna punda tilboð frá Arsenal í Danny Welbeck en BBC greinir frá þessu í kvöld.

Welbeck ætti því að ganga í raðir Arsenal áður en félagaskiptaglugginn lokar eftir tvo tíma ef ekkert óvænt kemur upp á.

Welbeck hefur verið orðaður við brottför frá Manchester United undanfarna daga en hann er ekki ofarleaga í röðinni hjá Louis van Gaal.

Síðdegis í dag var orðrómur um að Arsenal ætlaði að fá Welbeck á láni en nú virðist félagið ætla að kaupa hann.
Athugasemdir
banner
banner