AC Milan hefur fengið franska framherjann Jonathan Biabiany frá Parma. Leikmaðurinn kostar 4 milljónir evra en Parma fær miðvörðinn Cristian Zaccardo að auki.
AC Milan tilkynnti þetta á heimasíðu sinni í dag og birt mynd af Biabiany í búningi félagsins.
AC Milan tilkynnti þetta á heimasíðu sinni í dag og birt mynd af Biabiany í búningi félagsins.
Biabiany er 26 ára snöggur sóknarmaður sem getur spilað úti á vængjunum og er talinn smellpassa í 4-3-3 leikkerfi AC Milan.
Hann þekkir vel til hjá San Siro þar sem hann kemur upp úr unglingastarfi Inter upphaflega.
Athugasemdir