Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 01. september 2014 21:10
Magnús Már Einarsson
Cleverley verður áfram hjá Manchester United
Tom Cleverley.
Tom Cleverley.
Mynd: Getty Images
Tom Cleverley verður áfram hjá Manchester United samkvæmt nýjustu fréttum frá Englandi.

Cleverley virtist vera á leið til Everton á láni en samningaviðræður hafa siglt í strand.

Manchester United vildi frekar selja leikmanninn og því varð ekkert af samningum.

Manchester United hafði áður samþykkt tilboð frá Aston Villa í Cleverley en háar launakröfur leikmannsins komu í veg fyrir samninga þar.

Cleverley er ekki ofarlega í röðinni hjá Manchester United en margir stuðningsmenn liðsins vilja sjá hann hverfa á braut.
Athugasemdir
banner