Crystal Palace ætlar að setja félagsmet með því að borga 7 milljónir punda fyrir miðjumanninn James McArthur frá Wigan.
Áfram halda viðræður milli Palace og Tottenham um vinstri bakvörðinn Zeki Fryers sem Palace hafði vonast eftir að geta fengið lánaðan en möguleiki er á að hann verði keyptur alfarið.
Sóknarmaðurinn Glenn Murray gæti yfirgefið Selhurst Park en aðeins ef nýr knattspyrnustjóri liðsins, Neil Warnock, getur tryggt sér annan leikmann til að fylla hans skarð.
Nottingham Forest, Reading og Ipswich hafa áhuga á leikmanninum sem skoraði 30 mörk í B-deildinni þegar Palace komst upp 2012-13.
Athugasemdir